Af hverju Banakringla?
Liðurinn sem heldur hausnum uppi.
Banakringlan, eða atlas (C1), er efsti hálsliðurinn. Hún ber höfuðið og gerir þér kleift að líta upp. Það er einmitt það sem leiðin inn í læknisfræði, tannlæknisfræði eða sjúkraþjálfun krefst af þér, aftur og aftur.
Í undirbúningnum
Þegar efnið virðist endalaust
Mánuðirnir fram að prófinu eru langir. Það koma kaflar sem þú skilur ekki í fyrstu tilraun og dagar þar sem allt fer úrskeiðis. Haltu hausnum uppi. Hver spurning sem þú svarar vitlaust í dag er spurning sem þú svarar rétt í júní.
Í prófinu
Þegar spurningin er erfið
Þú munt mæta spurningum sem þú kannt ekki svarið við. Það gera allir. Haltu hausnum uppi, merktu við þitt besta svar og haltu áfram. Ein erfið spurning ræður ekki úrslitum, en næsta spurning gæti gert það.
Þegar niðurstaðan kemur
Hver sem hún er
Hvort sem þú kemst inn eða ekki: haltu hausnum uppi. Prófið mælir frammistöðu á einum degi, ekki hver þú ert. Ef það tekst ekki í ár byrjar þú næstu tilraun ekki á núlli, því allt sem þú lærðir fylgir þér áfram.